top of page

Sundlaugin Laugaskarði

Ein elsta og glæsilegasta sundlaug landsins. Náttúrulegt gufubað.


Sundlaugin Laugaskarði er ein fallegasta sundlaug landins, en hún var byggð var árið 1963 og hönnuð af Gísla Halldórssyni arkitekt. Eldri sundlaugarbygging hafði staðið á sama stað frá árinu 1938. Sundlaugin er 50 metra löng og 12 metra breið og var um langa hríð langstærsta sundlaug landsins. Sundlaugin í Laugaskarði er svokölluð gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Laugin er í skjólsælli hvilft sem veit gegn suðri, norðan Varmár. Á sundlaugarsvæðinu er heit, grunn setlaug, kaldur pottur, heitur pottur með vatnsnuddi og náttúrulegt gufubað. Í sundlaugarhúsinu er líkamsræktarsalur sem er rekinn af íþróttafélaginu Hamri. Austan við laugina eru tveir strandblaksvellir. Sumaropnun 15. maí til 14. september: Mánudaga – föstudaga: 06:45- 21:30 Laugar- og sunnudaga: 09:00 – 19:00 Vetraropnun, 15. sept til 14. maí: Mánudaga til föstudaga: 06:45- 20:30 Laugar – og sunnudaga: 10:00-17:30 Sundlaugin Laugaskarði 810 Hveragerði Sími: 483 4113 netfang: laugaskard@hveragerdi.is


bottom of page