top of page

Reykjaböð - Hot Springs
Náttúrulón og heilsulind við rætur Reykjadals
Um þjónustuna
Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind sem opnar sumarið 2026 við rætur Reykjadals í Hveragerði. Í boði er fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum. Hér getur þú notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum. Okkar markmið er að skapa eftirminnilega upplifun í einstöku umhverfi þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman. Opið alla daga frá kl. 10-22:00 Reykjaböð Árhólmar 5 - Reykjadal 810 Hveragerði Sími: 625-6000 Vefsíða: reykjabod.is
bottom of page