
Reykjaböð - Hot Springs
Náttúrulón og heilsulind við rætur Reykjadals
Um þjónustuna
Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind við rætur Reykjadals í Hveragerði. Í boði er fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum. Hér getur þú notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum. Okkar markmið er að skapa eftirminnilega upplifun í einstöku umhverfi þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman. Opnunartímar: SUMAR (1. júní til 30. september) - Alla daga 10:00-22:00 VETUR (1. október til 31. maí) - Mánudaga - Fimmtudaga 10:00-21:00 - Föstudaga - Sunnudaga 10:00-22:00 Hátíðisdagar - 24. desember. Aðfangadagur 10:00-16:00 - 31. desember. Gamlársdagur 10:00-18:00 Eldhúsið er opið frá 11:30-20:30 Reykjaböð Árhólmar 5 - Reykjadal 810 Hveragerði Sími: 595-6000 Vefsíða: reykjabod.is