
Skjálftinn 2008
Upplifðu skjálfta að stærðinni 6 á Richter!
Sýning í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði. Þann 29. maí 2008 kl.15:45 varð öflugur skjálfti suðaustur af Hveragerði. Stærð hans var 6,3 á Richterskvarða. Á sýningunni er gerð grein fyrir orsökum og afleiðingum jarðskjálftans í maí 2008 í Hveragerði. Á sýningunni má sjá reynslusögur íbúa, upplýsingar um áhrif skjálftans á hús, nánasta umhverfi og innbú bæjarbúa. Á sjónvarpsskjáum má sjá upptökur úr eftirlitsmyndavélum, ljósmyndir frá bæjarbúum og upplýsingar frá Jarðskjálftamiðstöð Háskóla Íslands. Hægt er að upplifa jarðskjálfta í jarðskjálftahermir sem er yfir 6 á richter. Jarðskjálftasprunga sem fannst við byggingu hússins 2003 er upplýst og á sýningunni. Aðgangur að sýningunni er ókeypis en greiða þarf fyrir upplifun í jarðskjálftaherminn. Skjálftinn - sýning Sunnumörk 5 810 Hveragerði